Reglulega eru gerðar kannanir á skólastarfinu til að vakta gang mála. Á grunni þeirra kannana eru teknar ákvarðanir um þau umbótaskref sem taka þarf í skólastarfinu. Hér að neðan má sjá nýlegustu kannanirnar. Á næstu misserum er áfromað að bæta hér við eldri könnunum, og svo vitaskuld því nýjasta hverju sinni. 

Skólapúlsinn

Skólapúlsinn er nýlegt matstæki sem byggir á þaulreyndum kvörðum. Allir nemendur skólans svara könnuninni árlega en þeim er fyrirfram skipt í 40 manna úrtök sem svara með reglulegu millibili yfir veturinn. Svör eru gefin upp á kvarðanum 1-10 og til viðmiðunar er meðaltal skólaársins 2008-2009 á landinu öllu haft 5 á öllum kvörðum. Í hverjum mánuði má sjá samanburð á svörum okkar nemenda við svör annarra á landinu.

 

Viðhorfakönnun Menntasviðs Reykjavíkurborgar

Könnunin er framkvæmd á tveggja ára fresti. Í niðurstöðum er víða að finna samanburð við síðustu ár og við meðalskor annarra skóla.

Vinnustaðagreining Reykjavíkurborgar

Könnunin er lögð fyrir starfsmenn borgarinnar árlega.

 

Niðurstöður samræmdra prófa

Samantekt síðustu ára er í vinnslu. Hér fylgjandi getur að líta samanburð á árangri nemenda fæddra árið 1994, í 7. bekk annars vegar og 10. bekk hins vegar.

Ýmsar kannanir sem skólinn framkvæmir sjálfur