Frakkland - Mont Marsan
Fimmtudagurinn-1-október
Í rútunni var mikið fjör og sungið bæði á frönsku og íslensku. Það sem aðallega gladdi augað mitt á leiðinni til Bordeaux var ótrúlegt magn af trjádrumbum sem höfðu verið hoggnir niður og lágu í geymslu til seinni tíma notkunar.
Í Bordeaux ferðuðumst við um í rútu og höfðum leiðsögumann til að upplýsa leyndardóma borgarinnar. Sjálfur hefði ég viljað ráfa meira um í þessari fallegu borg og jafnvel fara inn í glæsilega Bordeaux-borgar sem nær tvöfaldri hæð Hallgrímskirkju (pfff! eins og það sé nú hægt).
Í lokin fengum við að labba um verslunargötuna og kaupa okkur föt á stórfenglegu kreppuverði. Þetta var að öllu leyti mjög skemmtilegur og flest allir bara ánægðir.
Já, gaman að þessu!
Sveinn Breki.
Föstudagur 2. október
Í dag fórum við Íslendingarnir án frönsku krakkanna í ferð suður í Baskaland í fylgd tveggja franskra kennara. Við gengum eftir Hendaye-ströndinni og skoðuðum tvíburaklettana svokölluðu. Þeir eru úr kalksteini og marne-steini, við gerðum tilraun með sýru til að sjá hvor var hvað. Síðan fórum við eftir göngustíg gegnum verndað landsvæði sem heitir Abbadia í höfuðið á Antonie d‘Abbadie landkönnuði. Þegar við vorum búin að borða nestið fórum við í bæinn Saint Jean de Luz þar sem við gengum verslunargötuna. Því miður voru allflestir búðareigendur í siestu svo búðirnar voru margar lokaðar. Síðan fór hver í sínu lagi til sinnar frönsku fjölskyldu.
Karítas og Sólrún
Laugardagur 3. október
Ég og Mare pennavinkona mín vorum vaktar kl. 9:30 og fengum við okkur morgunmat. Í Frakklandi hita þau mjólkina og setja morgunkornið síðan út í sem er mjög sérstakt. Við keyrðum svo til borgarinnar Pou og þar skoðuðum við kastala Henry the 4th. Versluðum smá og keyrðum svo heim. Fengum kartöflur og parmaskinku með bræddum osti yfir sem var óskaplega gott. Fórum svo að sofa um kl.23.
Þriðjudagur 6. október
Við byrjuðum daginn á handknattleiksmóti sem stóð til hádegis. Liðin voru blönduð þ.e. Íslendingar og Frakkar í hverju liði. Eftir langa og stranga keppni urðu úrslitin ljós og lið Alexanders varð sigurvegari eftir æsispennandi úrslitaleik gegn liði Sigurðar. Eftir leikinn var síðan verðlaunaafhending þar sem sigurliðið fékk glæsilegan bikar í verðlaun. Eftir þessa löngu keppni var farið í matsalinn þar sem við fengum mat að hætti Landesbúa. Eftir hádegið var farið í ratleik þar sem meðlimir hvers hóps þurftu að vinna saman til að komast að svörum við spurningar á ýmsum stöðum í miðborg Mont Marsan.

