Samkvæmt grunnskólalögum frá 2008 ber hverjum skóla að leggja fram starfsáætlun. Þar segir m.a. í 29. grein:

"Í árlegri starfsáætlun er m.a. gerð grein fyrir skóladagatali, þ.m.t. lengd jólaleyfis, páskaleyfis og annarra vetrarleyfa, starfsáætlun nemenda, skólareglum, stoðþjónustu, félagslífi og öðru því sem varðar starfsemi skólans ár hvert. Starfsáætlun skóla skal árlega lögð fyrir skólanefnd til staðfestingar sem staðfestir gildistöku hennar þegar ljóst er að hún hafi verið unnin í samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá, kjarasamninga og ákvarðanir sveitarstjórnar um fyrirkomulag skólahalds."

Starfsáætlun Laugalækjarskóla 2009 - 2010

Það efni sem óskað er að standi í starfsáætlun er að finna á fjölmörgum síðum á vef skólans. Þessi síða er hugsuð sem upphafsreitur þess sem vill fá góða yfirsýn yfir skólastarfið en til að forðast tvítekningar er að mestu vísað á aðrar síður. Vefur skólans er þó nýr og enn stendur yfir vinna við að setja efni inn á hann.

Fyrst af öllu skal bent á handbók skólans. Í henni er á aðgengilegan hátt hægt að lesa yfirlit um skólastarfið í heild sinni, nám, námsmat, stoðþjónustu og helstu sérkenni. Hér á vefnum er hægt að lesa sérstakleg um stefnu skólans, nám almennt, námsmat og kennsluáætlanir. Það skal þó tekið fram að þessar vikurnar er unnið af kappi við endurbætur á stefnu skólans. Hún verður sett fram samkvæmt kerfi sem á ensku nefnist balanced scorecard og mun það einnig verða grunnur að sjálfsmati skólans og þróun hans. 

Af skóladagatali má lesa upplýsingar um upphaf og endi skólaársins, kennsludaga, leyfi og fl. sem tilheyrir starfsáætlun skólans. Inn á skóladagatalið vantar árshátíð nemenda sem verður 12. mars og fellur öll hefðbundin kennsla niður þann dag en í staðinn er fjölbreytt smiðjuvinna í boði nemendaráðs. Sérstök jóladagskrá verður 16., 17, og 18. desember. Auk hefðbundinnar kennslu er þar að finna miðbæjarferðir, kvikmyndasýningar, spilavist og svo hefðbundin stofujól 18. desember.

Laugalækjarskóli og félagsmiðstöðin Laugó standa saman að nemendaráðum sem skipuleggja félagslíf skólans. Það samanstendur af reglulegu starfi á opnunartíma félagsmiðstöðvar og einstökum viðburðum þess utan. Smellið á tengla til að sjá nánar.

Skólareglur Laugalækjarskóla og viðurlög við þeim eru í endurskoðun sem stendur. Þangað til nýjar reglur verða birtar gilda þessar reglur. 

Stoðþjónusta skólans er tiltekin í sérstakri valmynd. Þar er ekki allt efni komið inn af eldra vef og gera má ráð fyrir að þar bætist við á næstu vikum.

Í valmyndinni skólinn má finna upplýsingar um stjórnendur, opnunartíma skrifstofu, fjölda nemenda, kennara og starfsmanna, starfsfólk skólans og netföng þeirra, viðtalstíma og fleira.

Í valmyndinni foreldrar er að finna upplýsingar um hvernig sækja skal um leyfi, um skólaráð, foreldrafélag, bekkjarfulltrúa, viðbrögð við óverðri og viðbragðsáætlun skólans við svínainflúensu.

Með von um að öllum í skólasamfélaginu reynist auðvelt að finna upplýsingar um það sem að skólastarfinu snýr og að endurnýjun á vefnum komi sér vel þegar upp er staðið. Hafið samband ef ykkur finnst eitthvað vanta.

Björn Magnús Björgvinsson skólastjóri
Jón Páll Haraldsson aðstoðarskólastjóri.