Foreldrasmiðjur
Ágætu foreldrar nemenda í Laugalækjarskóla.
Sú hugmynd hefur blundað um hríð í skólasamfélaginu að koma upp litlum gagnagrunni með nöfnum þeirra foreldra sem gætu hugsað sér að nýta reynslu sína og menntun til að fræða nemendur skólans við ýmis tækifæri. Við sjáum það einkum gerast með eftirfarandi hætti:
- Kynningu á náms- og starfsferli sem gæti verið fræðandi og hvetjandi í senn. Nemendur á grunnskólaaldri eru mjög sólgnir í að fræðast um þær námsleiðir sem í boði eru og hvernig nám getur nýst á ólíkan hátt.
- Aðstoð við kennslu þar sem sérfræðiþekking viðkomandi gæti nýst.
Athugið að hér er ekki sérstaklega verið að leita eftir langskólagengnu eða hálaunuðu fólki fremur en öðrum. Þeir sem eru án atvinnu sem stendur eða komnir á eftirlaun hafa jafn fróðlega sögu að segja og hver annar. Afar og ömmur eru ennfremur velkomin á skrá. Skráningin er ekki bindandi á neinn hátt og þátttaka ykkar hverju sinni fer vitaskuld eftir aðstæðum.
Málstofur af þessu tagi voru haldnar í fyrsta sinn á vordögum 2010.

