Upplýsingaver

Skólasafn og tölvuver er sameinað í upplýsingaver Laugalækjarskóla. Starfsmenn upplýsingavers vinna náið með kennurum skólans að skipulagi verkefna þar sem nemendur læra að breyta upplýsingum í þekkingu með því að afla, meta og flokka upplýsingar á gagnrýninn hátt og skila niðurstöðum með miðlum upplýsingatækninnar. Allir nemendur skólans vinna verkefni í upplýsingaveri og í lok hvers verkefnis kynna þeir niðurstöður fyrir foreldrum.

Upplýsingaverið er vel búið gögnum og opið nemendum allan skóladaginn til verkefnavinnu. Nemendur geta líka komið og kíkt í bók eða tímarit í hléum. Í skólanum er lögð mikil áhersla á færni nemenda í lestri og lesskilningi og kapp lagt á að nemendur lesi bækur.