Verðlaun
Síðastliðinn vetur tóku nemendur 10. bekkjar og allmargir nemendur 9. bekkjar þátt á ritgerðasamkeppni á vegum Oxford Press. Við sendum inn yfir 70 örsögur, en alls bárust forlaginu yfir 700. Þáttakan frá Íslandi fór fram úr fremstu vonum og úrvinnslan tók langan tíma. Það var okkur mikið gleðiefni að önnur verðlaun féllu í skaut Eyjólfs E. Jóhanssonar sem útskrifaðist frá okkur síðastliðið vor. Skráning í mataráskrift
Skráning nemenda í hádegismat er hafin. Skráningin fer fram á Rafrænni Reykjavík. Ef skráning gengur ekki snurðulaust fyrir sig má fá aðstoð í þjónustuveri Reykjavíkurborgar í síma 411 1111. Fyrir daglegar máltíðir er greitt jafnaðarverð, 5000 kr. á mánuði. Fyrstu dagana fá nemendur að borða, óháð gangi skráningar. Líkt og á síðasta ári stendur öllum til boða að fá sér hafragraut í morgunfrímínútum kl. 9:30 endurgjaldslaust, alla daga nema föstudaga. Skólasetning
Laugalækjarskóli verður settur mánudaginn 23. ágúst. Nemendur mæta sem hér segir:
Skólaslit og skólasetning
Skólaslit og brautskráning frá Laugalækjarskóla voru þriðjudaginn 8. júní á sal skólans. Skólinn verður settur á ný þann 23. ágúst en skrifstofan opnar 5. ágúst. |


