picture 007


Upplýsingaverið sameinar skólasafn og tölvuver. Upplýsingaverið er vel búið gögnum og opið nemendum allan skóladaginn til verkefnavinnu. Þar læra nemendur að afla upplýsinga úr margskonar miðlum, vinna skipulega úr þeim og skila niðurstöðum með notkun mismunandi forrita.

Nemendur geta líka komið og kíkt í bók eða tímarit í hléum. Í skólanum er lögð mikil áhersla á færni nemenda í lestri og lesskilningi og kapp lagt á að nemendur lesi sem allra mest.

Upplýsingaver Laugalækjarskóla er opið á skólatíma. Reynt er að hafa opið í hléum og þá geta nemendur komið og lesið blöð og bækur.

 

Kynning nemenda