Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í hliðardálk

Tungumálver í Laugalækjarskóla

 




Laugalækjarskóli  |  Info in English     

Fréttabréf

Fréttabréf
evr-tungum-100.jpg
Tungumálaverið

 

Tungumálaverið er þjónustustofnun þar sem veitt er kennsluráðgjöf.
Þar fer fram staðbundin kennsla fyrir nemendur í Reykjavík.
Boðið er upp á netnám fyrir nemendur innan bæjar og utan.
Í mótun er þjónusta farkennara við börn af erlendum uppruna.

Markmið Tungumálavers er þríþætt:
Að veita kennurum og skólum ráðgjöf og fræðslu um kennsluhætti er stuðla að einstaklingsmiðuðu námi og nemendasjálfstæði í tungumálum með aðstoð tæknimiðla. 
Að búa nemendum námsaðstæður einstaklingsmiðaðs náms með upplýsingatækni. 
Að efla sjálfstæði nemenda með því að leggja áherslu á markmiðsbundna kennsluhætti og mat með námsmöppum

Við Tungumálaverið starfa deildarstjóri, kennsluráðgjafar og kennarar.


Beinn sími 588 7509

 


 

 
Mars í Tungumálaveri
Niðurstöðum vefkönnunar sem lögð var fyrir pólska foreldra 4. - 14. febrúar 2010.
Tungumálatorginu, samstarfsverkefni um stuðning við íslenskunám, tungumálanám og fjölmenningu.
Ráðgjafarvef í dönsku sem settur verður upp í tengslum við Tungumálatorgið.
Etwinning verkefninu: Digital resa i de nordiska länderna.
Fundi norsku- og sænskukennara 19. mars.
Fréttabréfum um kennslu pólskrar tungu, bókmenntum, landafræði og sögu.
_______________________________________________________________________________
 
Niðurstöður vefkönnunar meðal pólskra foreldra
Dagana 4. – 14. febrúar var lögð vefkönnun fyrir pólska foreldra til að kanna viðhorf  þeirra til pólskukennslu í  Tungumálaveri.

Kennslan í pólsku er að frumkvæði Menntaráðs og er jafnframt í samræmi við § 16 í lögum um grunnskóla, 2008 en þar segir: ”Grunnskólum er heimilt að viðurkenna kunnáttu í móðurmáli nemenda með annað móðurmál en íslensku sem hluta af skyldunámi er komi í stað skyldunáms í erlendu tungumáli.”

Könnunin var send út til 70 foreldra, 50 svöruðu henni, en það eru um 70% þátttakenda. Könnunin er liður í innra mati Tungumálavers.

_______________________________________________________________________________

 
Febrúar í Tungumálaveri
Í fréttabréfinu er sagt frá
Norrænu e-Twinning verkefni sem nemendur í 9. bekk í norsku og sænsku taka þátt í
Árlegri áramótaræðu norskunema í 10. bekk
Viðburðum mánaðarins
Hraðnámskeiði í ástarpólsku
og ýmsu öðru sem á daga drífur hér í Tungumálaverinu.
___________________________________________________________________________________________
    bocian_wiktorii_i_oktawii.jpgStork-verkefnið er fjölþjóðlegt verkefni í fjórum hlutum. Öðrum hluta þess er nýlokið. Framlag nemenda Tungumálavers fær hrós frá dómnefnd sem skipuð er af pólska menntamálaráðuneytinu. Verkefnin sem fyrir nemendur eru lögð þykja fjölbreytt og ýta unir áhugaverða útfærslu nemenda. Leiðarbók verkefnisins er í bloggformi. Gott málfar og fjölbreyttur orðaforði þykir einkenna bloggið. Einnig þykja sögur nemenda af storkum skapandi og frumlegar. Framlag nemenda Tungumálavers hlýtur aukastig og hamingjuóskir fyrir vel unnin verkefni.

 /Bardzo pomysłowo zrealizowano temat. Wprowadzono różnorodne aktywności uczniów i w efekcie uzyskano ciekawe prace. Blog został skomponowany czytelnie i przejrzyście, z wykorzystaniem poprawnego i bogatego słownictwa. Cieszymy sie , iż uczniowie tak kreatywnie przystąpili w tym etapie do pisania opowiadań o bocianie. Gratulujemy pomysłów i ponownie zachęcamy do zdobywania dodatkowych punktów./

 

 

________________________________________________________________________________________

 



Tungumálaver er í Laugalækjarskóla | við Laugalæk | 105 Reykjavík | Sími 588-7500 | Fax 588-7548 | Þetta netfang er varið fyrir ruslpóst snöpum, þú þarf að hafa javascript virkt í vafranum til að sjá það. | Kort

Vefhönnun: Hugsa sér !