| Þróunarverkefni |
|
Frá stofnun hafa starfsmenn Tungumálavers átt frumkvæði að fjölmörgum þróunarverkefnum sem tengd eru netnámi og tungumálakennslu. Netnámið í norsku, sænsku, dönsku og pólsku er eitt samfellt þróunarverkefni þar sem námsefni og kennsluhættir eru þróaðir jafnt og þétt. Þróunarverkefni sem Tungumálaver á aðild að skólaárið 2010 – 2011
Tungumálatorgið
er samstarfsverkefni í mótun og hefur aðstöðu í Tungumálaveri. Verkefnið er
styrkt af menntamálaráðuneyti og nýtur velvilja margra aðila. Tungumálatorginu
er ætlað að verða þekkingarmiðja og upplýsingavefur um tungumálanám og –kennslu
í samfélagi fjölmenningar.
Á vefsíðum
verður efni þar sem höfundarrétthafar hafa heimilað afnot af efninu samkvæmt
ákvæðum Creative Commons - "hugverkasameign".
Tilgangurinn
með Torginu er að koma betur á framfæri efni sem unnið hefur verið opinbera styrki á
undanförum árum, samnýta efni, þekkingu, reynslu og fé, efla kennara í starfi með hagnýtu stoðefni
og umfram allt að tryggja nemendum þann jöfnuð sem þeir eiga rétt á samkvæmt
lögum. Tungumálatorg skólanna er vettvangur allra skóla,
kennara og foreldra á Íslandi án tillits til búsetu eða efnahags.
Tungumálatorgið er fjöllaga þróunarverkefni. Til að byrja
með verða þar efnisvefir, samskiptavefir og námsvefir sem tengjast kennslu í íslensku
sem annað mál og íslensku fyrir íslensk börn erlendis, kennslu í dönsku,
norsku og sænsku, kennslu í pólsku og hugsanlega öðrum tungumálum innflytjenda.
Verkefnið hefur fengið styrki úr Sprotasjóði, Nordplus, Samstarfssjóði Íslands og Danmerkur, Þróunarsjóði innflytjendamála félagsmálaráðuneytisins og Þróunarsjóði grunnskóla.
Samstarfsaðilar, auk menntamálaráðuneytis, eru m.a. Menntasmiðja Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Menntasvið Reykjavíkurborgar, Félag dönskukennara og Félag norsku- og sænskukenna. Þróunarverkefni sem unnin verða í Tungumálaveri skólaárið 2009 - 2010
Þróunarverkefni sem unnin voru á vegum Tungumálavers skólaárið 2008 – 2009
Þróunarverkefni tungumálavers hafa notið styrkja úr þróunarsjóðum menntamálaráðuneytis, Menntasviðs Reykjavíkur, Norrænu ráðherranefndarinnar, Samstarfssjóði Íslands og Danmerkur um dönskukennslu á Íslandi, utanríkisráðuneytum Noregs og Svíþjóðar, ræðismannsskrifstofu Póllands á Íslandi og Velferðarsjóði barna. |
Tungumálaver er í Laugalækjarskóla | við Laugalæk | 105 Reykjavík | Sími 588-7500 | Fax 588-7548 |
Þetta netfang er varið fyrir ruslpóst snöpum, þú þarf að hafa javascript virkt í vafranum til að sjá það.
| Kort