|
Boðið er upp á netnám/fjarkennslu í norsku, sænsku og pólsku.
Aðstaða í heimaskóla
Æskilegast er að nemendur geti stundað fjarnám á skólatíma þegar samnemendur eru í dönsku og ensku.
Staðsetning
Nemendur þurfa að hafa forgang að nettengdri tölvu í þeim tímum sem þeir stunda fjarnámið. Tölvan þarf að vera staðsett þar sem er næði, annað hvort á bókasafni, vinnuherbergi eða tölvustofu.
Notendanafn og lykilorð
Notendanafn og lykilorð nemenda eru á ábyrgð heimaskóla.
Tækjakostur
Æskilegt er að nemendur hafi aðgang að hraðvirkri, nettengdri tölvu sem er í góðu ásigkomulagi og geti nýtt sér bæði Explorer og Firefox eftir því sem við á. Heyrnartól og hljóðnemar þurfa að vera staðalbúnaður á tölvum sem netnemar fá úthlutað til notkunar ásamt forritunum: Skype, MediaPlayer, Audacity og Picasa, sem öll skipta sköpum í hlustunar-, munnlegum verkefnum og samskiptum milli kennara og nemenda. Einnig þurfa þeir að hafa greiðan aðgang að helstu ritvinnsluforritum, s.s. Word, PowerPoint og Front Page. Viðeigandi orðabækur.
Tengiliður
Nemendur og fjarkennari þurfa að vita af einhverjum í heimaskóla sem þeir geta leitað til um aðstoð við tækni og ef þarf að hringja í kennara.
Nemandinn
- Fer í sænsku/norsku/pólsku í hverjum dönskutíma.
- Enskunemar taka netnámið í staðinn fyrir ensku í heimaskóla.
- Mætir til vinnu í hverjum tíma. Netnámið er skyldunám.
- Leitar sér aðstoðar STRAX og hann/hún þarf þess með.
- Fylgist með stigum sínum í einkunnabók sinni í netskólanum.
Auk undirstöðukunnáttu í málinu eru kröfur til nemenda í netnámi:
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Metnaður til að gera betur
- Nákvæmni og þolinmæði
- Að geta samþætt nám í tungumáli og tækni
- Að vera dugleg(ur) að leita sér aðstoðar
- Að lesa fyrirmæli vel og fara nákvæmlega eftir þeim
Verkefnin
Unnið er í 2 - 3ja vikna þemum.
Kennslu- og námsáætlanir eru á heimasíðum greina.
Hvert þema inniheldur fjölbreytt verkefni:
- Munnleg
- Skrifleg
- Lesskilningsverkefni
- Málfræðiæfingar
Ekki á að skila öllum verkefnum til kennara.
Sum verkefni eru eingöngu til að æfa sig á.
|
|