Virkni foreldra skiptir máli!
SAMFOK (samtök foreldra grunnskólabarna í Reykjavík) var stofnað 1983 og eru svæðasamtök foreldra í grunnskólum Reykjavíkur.
Markmið SAMFOK eru:
- að standa vörð um réttindi barna til menntunar og þroska,
- að beita sér fyrir auknum áhrifum foreldra á skólastarf,
- að vera sameiginlegur málsvari foreldra gagnvart stjórnvöldum,
- að efla samstarf aðildarfélaganna og annast sameiginleg verkefni